Karnival í Naters

Já maður vaknar upp við þvílíku lætin alla morgna þessa dagana. Í gærkveldi  (föstudaginn 13 feb) byrjaði fjörið með miklumeldglæringum þegar drekinn kom í þorpið. í dag er 1 dagur í Karnivali og öll börn í bænum mætt og síðan stendur fjörið bara frameftir og út alla vikuna.... já engin pása. Ívar hefur boðið nokkrum gaurum í partý í kvöld og húsið leikur á reiðiskjálfi.. eins gott að hafa augu opin.... heyrðum mikil læti og runnum á hljóðið og voru þá allir gæjarnir út í glugga og góluðu "Porno partý .... Porno partý"  já miklir gaurar þar á ferð.   það  er einhvernvegin þannig þessa dagana að það verða allir dálítið geggjaðir :)

En við ætlum að leyfa ykkur að fylgjast aðeins með þessu fjöri.. þar sem þið getið ekki mætt á staðinn :(

hér koma myndir og myndbönd og kannski reynum við að skella einhverju inn næstu daga..þannig að ....fylgist með.

tveir fyrrum nemendur Magga mættu til að kíkja á fjörið með okkur...sá í rauða jakkanum er rússi og er mentaður eldflaugaverkfræðingur frá Háskólanum í Moskvu...já margir furðulegir fýrar hér  

þá hefst fjöriðDularfullur náungi þetta..

 

 

 

 

 

 

 

 þessi myndbönd eru tekin af svölunum heima hjá mér..skrúðgangan fer frá torginu og niður götuna framhjá húsinu okkar

 


Seilpark fuhrer

Já maður fékk sér bara vinnu í sumar við að klifra og djöflast upp í trjám. Var reyndar bara mjög gamandsc06234.jpg  dsc06287.jpg

dsc06133.jpg 


Magnús garðyrkjumaður

Já hann er dugnaðarforkur hann Magnús...lagði af stað í mikla garðrækt þetta vorið....ja hann færi nú kannski ekki 1.verðlaun fyrir garðyrkjustörf enda algjör óþarfi að vera stöðugt að reyta arfa

En það var nú samt þessi fína uppskera, tómatar, púrrulaukur, salat af ýmsum tegundum,dill, ja og ýmislegt fleira sem ég kann ekki að nefna. 

dsc05942.jpg dsc06088.jpg dsc06091.jpg  


Ívar og Maggi í klettabrölti.

þeir strákarnir skelltu sér einn góðviðrisdag á klettastíg.... maður verður að vera með belti en leiðin er tilbúin.. þetta er Massaklettersteig sem er hér rétt hjá upp í fjlalli.

dsc06111.jpg dsc06121.jpg dsc06127.jpg dsc06100.jpg dsc06124.jpg 


Maggi klöngrast upp á fjallstoppa..

Maggi og félagar skelltu sér upp á Alphubel sem er 4206 metrardsc05977_680906.jpgdsc05964.jpg

Maggi útskrifast

jes.....Þá er minn maður búin að klára þennan áfanga og útskrifaðist með pomp og prakt þann 19. júiní. Fjölskyldan skellti sér í sparidressið og fórum til Le Bouveret þar sem útskriftin fór fram í blíðskaparverði. Eftir athöfnina var boðið upp á mat og drykk niður í skólanum en þegar því lauk fórum við til Montreux og snæddum kvöldverð á flottum veitingarstað.

DSC05867DSC05835

 

 

 

 

 

 

 

DSC05850 


Skruppum til London

ja þegar allir gestirnir voru farnir..á laugardagsmorgni skelltum við okkur í helgarferð til London með Henry og Birgitte;)

já mikið fjör...fórum frá Genf og lentum á Citi airport..alveg frábært í miðborg London. Vorum í gistingu upp í Notthing Hill á einhverju hippahóteli sem Maggi fann á netinu....Gesthouse West...frekar skemmtilegt,

Fórum á markaðinn í Porto Bello um morgunin og skelltum okkur síðan niður í bæ á Belgo..sem selur krækling og franskar og mikið úrval af bjór..... mikið stuð..fórum á Momos....Itsu....Ivy....skemmtum okkur konunglega þessa helgi og til baka á mánudegi :)

DSC04082

 DSC04124DSC05722 

 

 

 

 

 

 

 



Sumarið komið

Loksins að maður kemur einhverju á prent aftur..er búin að vera í miklu bauki með að koma myndum inn á síðuna..gafst síðan alveg upp, en í gær skrifaði ég til blog.is og auðvitað barst hjálpin strax..ekki nota operu vafraran..minn maður sem sagði að hann væri bestu og auðvitað var ég búin að breyta öllu hjá mér..en semsagt farin að nota Explorer aftur og get sett in myndir. veiiiii LoL

Allavega hér eru allir í stuði, búin að vera mikill gestagangur og mikið fjör. Mamma og Rósa Birgitt voru hér í tvær vikur í lok apríl og byrjun mai og var mikið fjör enda gert víðreist um svæðið og brunað alla leið til Feneyja.DSC07694 DSC07820Endilega kíkið á slóðina http://naters-sviss.blog.is/album/ og skoðið myndirnar  

það skemmtilega var að á sumardaginn fyrsta breyttist veðrið og sumarið kom með miklum stæl.

laugardaginn 10 mai var mikið fjör á heimilinu enda var Nína að fara á útskriftarball með vinkonum sínum í menntaskólanum í Brig og ég var að mála allar skvísurnarDSC05636

Um kvöldið þann 10.mai kom Hrönn vinkona í heimsókna og ég skellti mér til Bern að taka á móti henni síðasta spottan. það var mikið fjör hjá okkur næstu daga..farið út að borða, verslað og hlegið mikið, og dömunni kennt að drekka rauðvín ekki dugar annað þegar maður er komin inn í mitt vínræktarhérað.DSC05645 Auðvitað var svo farið með dömuna í smá göngutúr í fjöllin.DSC05655DSC05666DSC05680


Maggi komin í Trocken fleisch framleiðslu.

það dugar ekki annað en taka þátt í  því sem hér er að gerast og í nóvember og desember fara allir hér á kaf í að hengja upp kjöt í skúrunum sínum..... Henry, Peter, Thomas Dimitri og Maggi  mættust snemma morguns eftir að vera búnir að panta ein 300 kg af kjöti. Maggi tók þessu nú rólega og ákvað að byrja með 6 kg. og fá að fylgjast með herlegheitunum. það var byrjað á Cafe Roma að fá sér kaffibolla og síðan var farið með kjötið upp í bilskúr þar sem það er lagt í sérstakan salt og kryddlög  og látið liggja þar í uþb. viku. Minn maður var ekki lengi að komast að því að þetta er svona kallaskrall...já menn eru búnir að fá sér nokkra snafsa á hádegi. En svo illa stóð á fyrir mínum að við þurftum að mæta á jóladinner hjá kennurunum í skólanum þannig að uppúr hádegi brunuðum við niður til Bouvered þar sem við snæddum þennan fína jóladinner. Við vorum ekki komin hingað heim aftur fyrr en um 9 leitið um kvöldið og þá kíktum við út til að líta á strákana..... þeir voru orðnir nokkuð skrautlegir og farnir að drekka landing vater..

DSC05228hér er mynd af kjötinu...tekin í janúar.


Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla.

Já hér hefur verið í nógu að snúast síðasta mánuð. það var náttúrulega þessi hefðbundni jólaundirbúningur..við fórum svosem ekkert á hvolf..en bökuðum nokkrar sortir og fórum á  jólamarkaðinn sem var hér í Naters...mikið fjör. 

þann 1. des héldum við smá innflutningspartí og var mikið fjör...Maggi sá um veitingar en ég um leikjadagskrána og var liðið látið hlaupa hér út um víðan völl í ratleik..W00t   

Guðsteinn kom á þorláksmessu eins og jólasveinn hlaðin góðgæti frá Íslandi..

jólahamborgarahryggurinn og hangkjötið. Síðan komu Halli og Stína þann 27.desember.

 það er þessi fíni snjór hér upp í falli þannig að farið var á skíði og rennt sér niður fjallið 

á sleiða,,,sem er mikið fjör.Grin 

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband