5.3.2007 | 16:26
hæ hæ og velkomin á síðuna okkar Magga.
þetta er fyrsta bloggið...loksins það tók nú tímana tvo að koma sér að verki, en betra seint en aldrei.
Helgin var alveg stórfín....reyndar búið að vera leiðindarveður undanfarið.. rigning, rigning og rigning..en snjóar upp í fjalli. En í gær stytti upp og var heiðskýrt og glampandi sól og ég Nína og Ívar vorum ekki lengi að skella okkur upp í fjall, aumingja Maggi var heima að læra...duglegur þetta var alveg frábær dagur..kíkið á slóðina http://www.bettmeralpbahnen.ch/d/live/index.html?0
þetta eru myndavélar á svæðinu þannig að þið getið skoðað veðrið í dag
Guðsteinn er að koma á næsta fimmtudag og allir bíða spenntir. Ívar er alveg viss um að það komi nýr tölvuleikur og Nína bíður eftir djúpum nammmmmmmi namm..enda nammigrísin í fjölskyldunni.
Athugasemdir
Frábært hjá ykkur og gaman að fylgjast með ykkur og fjallaferðunum, en þú mátt ekki gleyma að setja inn á bjútý bloggið okkar
Knús og kossar úr Kópavogi
Helga Jóns (IP-tala skráð) 5.3.2007 kl. 22:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.